26.1.2008 | 21:26
David Hasselhoff fan club
Það varð helvíti mikið sprell á manni í gær. Ætlaði nú helst að vera bara róleg og njóta föstudagskvöldsins en neibb. Dísa og Kata komu í dinner og svo var opnaður bjór og í stuttu máli enduðum við á Café Amor þar sem Stella C-cup var að gera góða hluti. Gott kvöld, mjög gott kvöld. Var svo að vinna kl.8 í morgun og man hvað það var erfitt. Kannski góð leið að útskýra ástandið á mér er að ég lagði upp á grasi, en ekki á bílastæðinu eins og planið var, hehe ..verð samt að viðurkenna að það var annar bíll þarna svo ég hélt að þetta væri bara bílastæði en neibb. Sóley spurði mig svo voða kurteislega hversvegna bílinn minn væri upp á grashól, haha. Þá var bílinn sem ég lagði við hliðin á farinn og Fabio bara einn upp á hólnum, veeeeel gert
Föstudagskvöld þýðir bara eitt fyrir Michael, en það er David Hasselhoff fan club kvöld En það er sem sagt þannig að lang flestir þjóðverjarnir sem eru hérna á Akureyri hittast á föstudagskvöldum á Amor. Maður sem vinnur með Michael heldur því framm að þjóðverjar lifa í þeirri blekkingu að David Hasselhoff sé ennþá kúl og því eru þeir að hittast til að lofa ást sína á honum. Skála honum til heiður og ræðast saman um hvað hann er svalur. Í gærkveldi voru þau heldur lengi að ná að tjá ást sína á þessum hot hot gaur og kom Michael heim öööörlítið rauður í augunum, greinilega nóg hægt að skála Sir Hasselhoff til heiðurs
En núna er ég að spá í að skella mér bara upp í rúm og horfa á einhverja mynd. Þetta verður sko rólegt laugardagskvöld, pant!
Anna Lóa sem nennir engann veginn að vinna á morgun
Athugasemdir
Ok ég missi bara af bloggum hérna þegar þú bloggar á hverjum degi!!! En allavega þá TRÚI ég ekki að þú hafir sett svona ÓGEÐSLEGA mynd á bloggið þitt.. jaaakkk... ættir að vara fólk við áður en það skrollar niður!!! Múhahahah..
Sunna (IP-tala skráð) 27.1.2008 kl. 10:20
Hvað meinaru með ógeðslegri mynd? Ertu að segja David Hasselhoff sé ekki hot hot hoooooot gaur?
Anna Lóa (IP-tala skráð) 27.1.2008 kl. 21:12
hann er meeeega svaluuuur!!
atli steinn (IP-tala skráð) 31.1.2008 kl. 09:25
don´t hassel the hoff.
Fannar frá Rifi, 31.1.2008 kl. 12:50
Þetta er án efa svalasti og heitasti maður veraldar!
Alli (IP-tala skráð) 29.2.2008 kl. 20:23
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.