Mið-viku-dagur

Hann Óli Grís á víst afmæli í dag og ég sem ætlaði að senda honum sms, en komst þá að því að inneignin mín var búin. Bömmer!

Ég á bara einn dag eftir í vinnunni. Ég held nú barasta að ég eigi eftir að sakna kvennanna þarna, þær eru mjög næs, svona flest allar, hahaha. Svo fannst mér þessi vinna langoftast skemmtileg, þó að maður átti auðvitað þessa slæmu daga eins og allsstaðar annarsstaðar, hehe Tounge en ég byrja svona í Vínbúðinni á föstudaginn og ég er orðin stressuð. Það er alltaf jafn erfitt að byrja að vinna á nýjum stað. Og líka ekki alveg auðveldasti dagurinn til að byrja í nýrri vinnu, flöskudagur í Vínbúð! En við sjáum hvernig þetta fer.

Við fengum loxins þvottavél í dag Smile ...ég eiginlega trúi ekki að ég sé búin að vera þvottavélalaus síðan í október. Það hlýtur að vera eitthvað met, haha.

En annars vildi ég bara losna við þetta langa blogg, hehe Grin ...

Anna Lóa sem elskar nýju þvottavélina sína

p.s. Go Manchester Cool

 

28.12.06 065
Þessi mynd er tekin 28. desember 2006 ..afmælisdeginum hennar Múttu minnar. Þarna var ég á leiðinni upp til Giggijoch með kláfnum og var í fríi. Ég fór og túristaðist aðeins og setti inn skrilljón og tuttugu myndir á gamla bloggið mitt Smile ..
Ég sakna þessara peysu sem ég er í og húfunnar minnar. 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hæhæ skvísan mín og gangi þér vel í nýju vinnunni.

Ég á nú alveg eftir rekast á þig í nýjuvinnunni þar sem ég versla nú þar stundum

Steffy (IP-tala skráð) 15.5.2008 kl. 14:32

2 identicon

Gangi þér ýkt vel í vinnunni Hlýtur að standa þig þar eins og á öðrum áfengissviðum;)

Go Manchester já! 

Binna (IP-tala skráð) 15.5.2008 kl. 16:04

3 identicon

Ohhh verð ég semsagt alltaf spurð um skilríki hahah en hey...fær fólk ekki alltaf starfsmannaafslátt????? múhahhahhaah

P.s kemst ekki í stelpuhitting um helgina er að fara til rvk og hrynja í það vííííí

Hafdís Huld (IP-tala skráð) 15.5.2008 kl. 20:25

4 identicon

Hæ... hvernig gengur í nýju vinnunni?

ég heyri svo í þér um helgina, ef þú veist um einhvern sem er að fara norður, þá máttu alveg láta mig vita. Mig vantar annað hvort far eða fá einhvern til að fá far hjá mér ;) svona til að minnka bensín kostnað

Ruth (IP-tala skráð) 20.5.2008 kl. 17:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband